Leita í fréttum mbl.is
Embla

Tvöhundruðogfimmtíu myndir

Nú á ég ekki eftir nema 116 myndir til að klára gæluverkefnið mitt. Raunar 114, þar sem ég tók auðvitað myndir 7. og 8. september. Lítið eftir af árinu, samt nærri fjórir mánuðir.

Ég ákvað í þetta skiptið að hafa myndirnar stærri en venjulega, þ.e. þessar 10 sem ég hef verið að velja úr síðustu 50 til birtingar á blogginu, því þær njóta sín flestar betur þannig.

Myndasafnið er á sínum stað, með sér svæði fyrir "Mynd á dag" verkefnið, og svo langar mig að minna ykkur á vefgallerýið sem ég setti upp á mikkivefur.is/gunni.

#204 - 22. júlí:
PAD204 - Light in the dark

Afgangurinn er á gunnarfreyr.wordpress.com.

Var að opna ljósmyndavef

Jamm, ég s.s. var að útbúa og opna vefsíðu sem inniheldur eitthvað af myndunum mínum.  Ég á nú frekar von á að hún breytist eitthvað með tímanum, en þetta er þó byrjunin.

Kíkið endilega í heimsókn á mikkivefur.is/gunni.

-GFS

P.S. Ég er enn að henda myndum inn á Flickr, hætti því ekkert í fyrirsjáanlegri framtíð.

gunnarfreyr.wordpress.com


Hinn legóski þursaflokkur

Ég hef aðeins verið að leika mér með legókubba sonar míns upp á síðkastið. Á þessari mynd er allt ljósmyndað nema ramminn.

PAD232 - Hinn ízlenski þursaflokkur

Hafði áður myndað legó-útgáfu af Helga Hóseassyni (myndin er á Wordpress blogginu mínu).


Flutningar yfir á Wordpress.com

Jæja, það hlaut svo sem að koma að þessu einhvern daginn.  Ég er fluttur yfir á gunnarfreyr.wordpress.com.

Á samt von á að ég bloggi að einhverju leyti á báðum stöðum til að byrja með, svona til þess að þeir fáu sem enn lesa bloggið mitt muni að færa sig.


Tvöhundruð myndir

Þá eru myndirnar orðnar 200 talsins. Raunar eru þær orðnar fleiri, því 200. myndin var tekin 18. júlí síðastliðinn. Jájá, ég veit, ég er lengi að koma þessu frá mér. Það er bara orðið svo skemmtilega erfitt að velja 10 myndir af síðustu 50. Það verður fróðlegt að reyna að velja 10, 20 eða 30 myndir úr þeim 366 sem verða til staðar í lok árs.

Það stefnir annars í að a.m.k. ein mynd fari á stóran strigaramma og verði hengd upp á vegg á veitingastaðnum Systrakaffi á Kirkjubæjarklaustri.

Og satt að segja er mig farið að dauðlanga að kaupa mér lítil Moo kort og dreifa þeim út um borg og bý (kannski ég skilji nokkur eftir á Systrakaffi).

Nýjustu myndirnar er venju samkvæmt hægt að skoða inni á Flickr.

#153 - 1. júní:
PAD153 - Watching the show

#160 - 9. júní:
PAD160 - At Versailles

#163 - 11. júní:
PAD163 - On fire

#167 - 15. júní:
PAD167 - Lemur in Apenheul

#177 - 25. júní:
PAD177 - Staying airborne

#181 - 29. júní:
PAD181 - Speeding

#192 - 10. júlí:
PAD192 - Colorful drops

#192 - 11. júlí:
PAD193 - The old part of Hofsós

#195 - 14. júlí:
PAD195 - Naust and Þórðarhöfði at sunrise

#199 - 17. júlí:
PAD199 - The bass player


Hálft annað hundrað mynda

Fyrir nokkrum vikum síðan náði ég þeim áfanga að hafa enst í mynd-á-dag verkefninu mínu í 150 daga samfleytt. Af því tilefni birti ég hér tíu af myndum 101-150. Talandi um, það var mun erfiðara að velja úr þessum 50 heldur en 100 myndum á undan. Það segir mér að mér hafi farið nokkuð fram frá því ég byrjaði á þessu, en það er þó samt sem áður annarra að dæma um það.

Ég reyni enn að hafa efnistökin fjölbreytt, vil ekki festa mig í einhverju einu. Smellið á myndirnar ef þið viljið sjá stærri útgáfu.

#103 - 12. apríl:
PAD103 - Destination: Grindavík

#104 - 13. apríl:
PAD104 - Walking in the sunset

#116 - 25. apríl:
PAD116 - Having a smoke

#126 - 5. maí:
PAD126 - Extinguished

#132 - 11. maí:
PAD132 - Still going strong

#134 - 13. maí:
PAD134 - Thirty years of marriage

#139 - 18. maí:
PAD139 - A beheaded dandelion

#141 - 20. maí:
PAD141 - Stay focused

#144 - 23. maí:
PAD144 - Dalalæða

#150 - 29. maí:
PAD150 - Shaken

Nýjustu myndirnar eru svo á sínum stað.


Bulls með fyrsta valrétt

Mikið rosalega er ég ánægður fyrir hönd minna manna í Chicago Bulls.  Tímabilið fór gjörsamlega í vaskinn, þeim hafði verið spáð sigri í Austurdeildinni en komust ekki einu sinni í úrslitakeppnina.  En í staðinn unnu þeir í lottóinu.

Að komast ekki í úrslitakeppnina þýddi í raun að þegar kom að því að draga um hvaða lið fengju fyrstu þrjá valréttina í nýliðvalinu átti Chicago 1,7% möguleika.  Sem er ekki vænlegt til vinnings.  Eða hvað?

Jú, þeir höfðu það af, unnu í lottóinu, fengu fyrsta valrétt.  Miami Heat, sem varð í neðsta sæti deildarinnar, fékk annan valrétt.  Gott á þá.

En á sama tíma og ég er ánægður með Chicago, þá er ég hundóánægður með San Antonio Spurs.  Þeir gera harða atlögu að því að eyðileggja enn eina úrslitakeppnina.  Óþolandi leiðinlegt lið þar á ferð.  Ég veit ekki hvað það er, en ég hef einhverra hluta vegna aldrei haft gaman af þessu liði.

Nóg í bili.


Að rýna í þýðingar er góð skemmtun

Ég var að horfa á sjónvarpsmyndina The Riverman nú fyrir stuttu og rak þar augun í tvær alveg kostulegar þýðingar.  Myndin fjallar n.v. um fjöldamorð í Seattle og það hvernig fjöldamorðinginn Ted Bundy hjálpar til við að leysa þau.

Svo ég byrji nú á öfugum enda, þá virðist sem þýðandinn hafi verið orðinn syfjaður undir restina, nú eða þá að hann er svona mikil tepra að hann hefur ekki kunnað við að rita rétta þýðingu.

Lögreglumaðurinn (Keppel) sem tekur að sér að spjalla við Bundy fær hann á endanum til að fjalla um sín eigin fjöldamorð, og upp úr krafsinu kemur að Bundy afhausaði fórnarlömb sín og geymdi höfuðin til að hann gæti sýnt vald sitt.  Og hvernig gerði hann það?  Enska útgáfan segir "by beating off to the skulls", en það var þýtt "með því að berja hauskúpurnar".

Dæmi nú hver fyrir sig, en mér finnst "sjálfs er höndin hollust" ríma vel við upphaflega textann.

Hin vitleysan toppar flest allt sem ég hef séð í þessu.  Lögreglumaður (Reichert) sem stýrir rannsóknarliði er að ræða við Keppel til að fá hann til að aðstoða sig við rannsóknina.  Keppel hefur greinilegan áhuga á þessu og spyr ýmissa spurninga, m.a. "Were any of the recent finds fresh?", og á þar við þau lík sem fundist í ánni.

Þýðingin?

Haldið ykkur fast.

"Voru einhver endursendu líkanna fersk?"

Ég þurfti að horfa á þetta fjórum sinnum áður en ég trúði þessu.


Hundrað myndir á hundrað dögum

Já, í fyrradag náði ég þeim áfanga að taka og setja inn hundruðustu myndina í "mynd á dag" verkefninu mínu. Nú eru aðeins tvöhundruðsextíuogsex myndir eftir.

Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með af ákefð, þá eru hér nokkrar (raunar rúmur fimmtungur) af myndunum hundrað. Hægt er að smella á myndirnar og sjá þær stærri á Flickr.

#14 - 14. janúar:
PAD014 - Lean on me

#15 - 15. janúar:
PAD015 - Bottoms up

#23 - 23. janúar:
PAD023 - Steamy pool

#24 - 24. janúar:
PAD024 - Concentrating on the game

#34 - 3. febrúar:
PAD034 - Whose food is it anyway?

#45 - 14. febrúar:
PAD045 - A haircutting kinda guy

#46 - 15. febrúar:
PAD046 - Seventeen hours old

#47 - 16. febrúar:
PAD047 - Broken

#48 - 17. febrúar:
PAD048 - Protruding

#53 - 22. febrúar:
PAD053 - Frostdried

#66 - 6. mars:
PAD066 - Thud!

#67 - 7. mars:
PAD067 - Irie man

#74 - 14. mars:
PAD074 - Drifting across

#75 - 15. mars:
PAD075 - Hofsós harbour in the winter

#76 - 16. mars:
PAD076 - Sunrise at Ennishnjúkur

#79 - 19. mars:
PAD079 - Seljalandsfoss in the spotlight

#82 - 22. mars:
PAD082 - Svartifoss in white

#86 - 26. mars:
PAD086 - Make us laugh

#95 - 4. apríl:
PAD095 - Off to bed

#97 - 6. apríl:
PAD097 - Forever

#100 - 9. apríl:
PAD100 - Northern lights over Hafnarfjörður


Næsta síða »

Gunnar Freyr

Gunnar Freyr Steinsson
Gunnar Freyr Steinsson

Forritari, fyrrv. körfuboltadómari, núna í dómaranefnd KKÍ.

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 23137

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband