Leita í fréttum mbl.is
Embla

Færsluflokkur: Sjónvarp

Að rýna í þýðingar er góð skemmtun

Ég var að horfa á sjónvarpsmyndina The Riverman nú fyrir stuttu og rak þar augun í tvær alveg kostulegar þýðingar.  Myndin fjallar n.v. um fjöldamorð í Seattle og það hvernig fjöldamorðinginn Ted Bundy hjálpar til við að leysa þau.

Svo ég byrji nú á öfugum enda, þá virðist sem þýðandinn hafi verið orðinn syfjaður undir restina, nú eða þá að hann er svona mikil tepra að hann hefur ekki kunnað við að rita rétta þýðingu.

Lögreglumaðurinn (Keppel) sem tekur að sér að spjalla við Bundy fær hann á endanum til að fjalla um sín eigin fjöldamorð, og upp úr krafsinu kemur að Bundy afhausaði fórnarlömb sín og geymdi höfuðin til að hann gæti sýnt vald sitt.  Og hvernig gerði hann það?  Enska útgáfan segir "by beating off to the skulls", en það var þýtt "með því að berja hauskúpurnar".

Dæmi nú hver fyrir sig, en mér finnst "sjálfs er höndin hollust" ríma vel við upphaflega textann.

Hin vitleysan toppar flest allt sem ég hef séð í þessu.  Lögreglumaður (Reichert) sem stýrir rannsóknarliði er að ræða við Keppel til að fá hann til að aðstoða sig við rannsóknina.  Keppel hefur greinilegan áhuga á þessu og spyr ýmissa spurninga, m.a. "Were any of the recent finds fresh?", og á þar við þau lík sem fundist í ánni.

Þýðingin?

Haldið ykkur fast.

"Voru einhver endursendu líkanna fersk?"

Ég þurfti að horfa á þetta fjórum sinnum áður en ég trúði þessu.


Dýrt eða ódýrt?

Ég hefði einmitt haldið að það væri tiltölulega ódýrt að styðja Eirík, fyrst það er langsamlega dýrast að kjósa í símakosningu Eurovision á Íslandi, því eins og kemur skýrt og greinilega fram á Eurovision vef RÚV þá er einfaldlega ekki hægt að kjósa Ísland ef maður er með íslenskt símanúmer.

Hræódýrt fyrir útlendingana að styðja Eika, og enn ódýrara fyrir mörlandann að veita honum andlegan stuðning, ekki satt?

Viðbót kl 12:21 - Búið er að breyta fyrirsögninni í "Dýrt að kjósa í Júróvisjón".  Það er ekki eins gaman að snúa út úr því.

visir_frettablogg Dýrt að styðja Eirík


Dökkhærður Eiríkur? Vörusvik!

Það hefur væntanlega (vonandi) verið vinnslan á myndbandinu sem olli þessum brúna lit á makka Eiríks Haukssonar.  Ef ekki, þá hljóta það að teljast vörusvik.

Álíka vörusvik og ef...

...Eiríkur Fjalar væri með linsur og strípur.

...Davíð Oddsson væri með hárgreiðslu Ólafs Ragnars.

...Ólafur Ragnar væri með hárgreiðslu Davíðs Oddssonar.

...Þingmaður skipti um flokk á miðju kjörtímabili (hmmm... það gerðist víst nokkrum sinnum)

...Michael Jordan hefði farið að spila með öðru liði en Chicago Bulls (nei, það gerðist aldrei!)

Annars var ekki annað hægt en að vorkenna Birgittu að þurfa að sitja í Kastljósi og tala vel um myndbandið að lokinni frumsýningu ("já... þetta var... ööö... ljómandi").  Dr. Gunni hefur hins vegar skapað sér þá ímynd að hann gat leyft sér að vera hreinskilinn.


mbl.is Eiríkur verður fimmti á svið í Helsinki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sofandi þýðandi

Það kann ekki góðri lukku að stýra þegar fólk er hálfsofandi við vinnu sína.  Hættan á mistökum eykst gífurlega.

Við hjónin þurftum að taka okkur stutt hlé til að hlæja í gærkvöld, þegar við vorum að horfa á Studio 60 á Stöð 2.  Allt vegna þess að þýðandinn hefur líklega verið hálfsofandi við vinnu sína.  Jafnvel rúmlega það.

Við vorum búin að reka augun í nokkrar augljósar þýðingavillur fram að þessu - og eina innsláttarvillu: talað um "ralibana", en ekki "talibana".  Ekkert mál að fyrirgefa þessa innsláttarvillu þar sem "r" og "t" eru hlið við hlið á lyklaborðinu.

Hláturrokan kom þegar við heyrðum persónu Matthew Perry (sem lék persónuna Chandler Bing í Friends) tala um Martin Luther King. 

Ástæðan?

Jú, þýðandinn hefur verið nánast sofandi og verið að dreyma Friends þættina, því á skjánum stóð "Martin Hluther Bing"!


Gunnar Freyr

Gunnar Freyr Steinsson
Gunnar Freyr Steinsson

Forritari, fyrrv. körfuboltadómari, núna í dómaranefnd KKÍ.

Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.3.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 22443

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband