Leita í fréttum mbl.is
Embla

Mín mynd merkt mbl.is - Leiðrétting

Leiðrétting kl 15:55: Jæja, nú fór ég laglega að ráði mínu.  Svona er að stökkva upp á nef sér án þess að kanna málin.  Þessi mynd hefur vissulega farið í gegnum mínar hendur, ég sjálfur séð um að setja hana inn á kkdi.is og kki.is, en ég tók hana hins vegar ekki.  Ég veit ekki hver tók hana (efast um að það hafi verið ljósmyndari Moggans), en ég fékk hana senda frá Kristni sjálfum 28. desember 2006.  Myndin sem ég tók, og vísa til í texta hér neðar, er ekki ósvipuð, en það er samt sem áður yfirmáta klaufalegt af mér að klikka svona á þessu.  Ég biðst því afsökunar á þessu röfli mér.  Eftir stendur að þeir merktu sér mynd sem er ekki þeirra.

Þessi mynd af Kristni Óskarssyni er síður en svo eign mbl.is.  Ég tók myndina fyrir tæpum tveimur árum síðan, rétt fyrir bikarúrslitaleik.

Mér finnst allt annað en fagmannlegt af mbl.is að merkja sér myndina.  Kannski vita þeir ekki betur.  Mögulega hafa þeir fengið myndina af kki.is (sem hefur leyfi til að nota hana), en að merkja sér myndina...

Pah!

[Viðbót kl. 15:10]  Sá rétt í þessu að þeir höfðu kippt myndinni út.  Mér finnst það þau viðbrögð álíka hallærisleg og það þeir merkja sér myndina.  Það hefði verið sáralítið mál fyrir þá að hafa samband og spyrja hvort þeir mættu nota myndina, nokkuð sem ég hefði gefið leyfi fyrir þeim að kostnaðarlausu, þar sem ég vil gera mitt til að auglýsa upp körfuboltann.


mbl.is Kristinn með 1000. leikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gúrúinn

Rukkaðu þá fyrir notkun á myndinni. Er ekki 20.000 kr. venjulegt verð? mbl.is hefur verið að leika þennan leik oftar en einu sinni og sumir hafa sent inn rukkun.

Hins vegar ber þetta merki um afspyrnuslakan metnað af hálfu fjölmiðilsins, því einhver er hann fyrst þeir eru að þessu. Stela myndum, merkja sér þær og borga svo ef þeir eru rukkaðir.

Ég myndi tala við ritstjórnina. Kvarta hástöfum og heimta skriflega afsökunarbeiðni.

Gúrúinn, 4.1.2008 kl. 14:35

2 identicon

Ég veit til þess að þeir hafi gert þetta áður. Hann Emil Sig hjá Haukum sendi þeim bréf um daginn vegna þess að þeir hafa verið að nota mynd af Kristrúnu Sigurjónsdóttur sem hann tók en þeir merkja sér hana. Hann var ekki búinn að fá svar frá þeim seinast þegar ég vissi.

Gunnar Stefáns (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 15:09

3 Smámynd: Gúrúinn

Nei, ég þarf ekkert að bæta við. Þessi hegðun mbl.is manna er ekki ný af nálinni og þeir hafa setið undir sama ámæli oft áður. Enda sést það á viðbröðgum þeirra að þeir hafa ekki hreint mjöl í pokahorninu og eins og Gunni segir, þá hefði verið einfaldast að hafa samband við hann og fá leyfi...

Þetta og arfaslæmt málfar er ótrúlegt metnaðarleysi eins stærsta fjölmiðilsins. Ég fer ekki ofan af því.

Gúrúinn, 5.1.2008 kl. 10:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Gunnar Freyr

Gunnar Freyr Steinsson
Gunnar Freyr Steinsson

Forritari, fyrrv. körfuboltadómari, núna í dómaranefnd KKÍ.

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 23268

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband